Fjöll í austri f*gurblá freista dalabarnsins Ungur fylgir æskuþrá upp til jökulhjarnsins Sveimað heimahögum frá hef ég vors á degi, víða stíða þræddi þá þunga hraunavegi Heiðin breiða hugumkær hvetur viljann ofar Leiðin seiðir, fráum fær, fögrum sýnum lofar
Gangan sækist öruggt enn urðarróti móti Einatt hlutu heiðamenn höggvinn fót á grjóti Hver, sem ofar á að ná, einskis metið getur þótt í fangið fái sá fjúk og hretið betur Anda heitum yndi nóg unaðsreitir geyma Seinna leitar þráin þó þinna sveita heima