Sigur Ros - Fjöll Í Austri Fagurblá lyrics

Published

0 185 0

Sigur Ros - Fjöll Í Austri Fagurblá lyrics

Fjöll í austri f*gurblá freista dalabarnsins Ungur fylgir æskuþrá upp til jökulhjarnsins Sveimað heimahögum frá hef ég vors á degi, víða stíða þræddi þá þunga hraunavegi Heiðin breiða hugumkær hvetur viljann ofar Leiðin seiðir, fráum fær, fögrum sýnum lofar Gangan sækist öruggt enn urðarróti móti Einatt hlutu heiðamenn höggvinn fót á grjóti Hver, sem ofar á að ná, einskis metið getur þótt í fangið fái sá fjúk og hretið betur Anda heitum yndi nóg unaðsreitir geyma Seinna leitar þráin þó þinna sveita heima