Hvít,hvít brjóstin og kirsuber
Köstuðu mér í hylinn
Berjamór berja augum berja þig
Aftur augum
Draumur minn í efstu hillu
Tómatlituð tunga lipur
Læðir orðum læðist inn í mig
Þögnum þakin heyrum eyrun
Heyra fátt, heyra lítið, ekki neitt
Og kossar þínir innsigluðu orðin
Viðlag:
Kríthvít brjóst þín, kirsuberin
Eplagrænir augasteinar
Fjólubláar flauels-kinnar
Blásvart hár þitt breiðir yfir;
Barnæskuna mína
Gulur hnöttur á himni blindar
Keyrir allt á kaf í birtu
Allir fuglar þurfa að fljúga
Líka þú, ég læt það ekki
á mig fá
Viðlag...