Hvít,hvít brjóstin og kirsuber Köstuðu mér í hylinn Berjamór berja augum berja þig Aftur augum Draumur minn í efstu hillu Tómatlituð tunga lipur Læðir orðum læðist inn í mig Þögnum þakin heyrum eyrun Heyra fátt, heyra lítið, ekki neitt Og kossar þínir innsigluðu orðin Viðlag: Kríthvít brjóst þín, kirsuberin Eplagrænir augasteinar Fjólubláar flauels-kinnar Blásvart hár þitt breiðir yfir; Barnæskuna mína Gulur hnöttur á himni blindar Keyrir allt á kaf í birtu Allir fuglar þurfa að fljúga Líka þú, ég læt það ekki á mig fá Viðlag...