Greið er leiðin, lindin tær. Ógnin er farin, vatnið þvær. Hvítþvegið hliðið, dagur nýr. Hér er kveðið, óttinn flýr. Í hyldýpið sting mér. Ólgandi hraunið, eilífðarhver. Kannski þú spyrjir En svarið það er.. Frá örófi alda, allt sem er,
Er til handa mér og þér. Fjallið að fjöru skríður. Eldur í jörðu bíður. Ef að því kemur, syndaflóð, Mannfólkið sefur. Heyr þinn óð. Og kannski þú spyrjir, En svarið það er... Svarið er innra með þér.