Mött er hin meyrasta taug,
Meðulin óhæf til bótar.
Í myrkrinu dufla við draug
Dragandi fjötur án fótar.
Grá veður, grugguga laug
Gisti ég forðum og skemmti
Skrattanum, skellti og flaug,
Slóttugur frá því sem henti.
En óð fluga vappar um velsæmi mitt
Og vendir sér síðan að drottni,
Hendir sér flöt upp í hásæti sitt,
Heygður hún segir hann rotni.
Menn eru meinsemdar grey
Markleysur hafa við ljótar
Truflaðir, trúa því ei
Að tímann og sálirnar mótar.
Tarfur sem telur sig mann,
En maðurinn telur sig drottinn.
Brennir og brýtur sig rann
Brosir svo efstur og montinn.
En ástin mun rísa og fljóta hér fram
Og fylla loks hjartað kalda.
Þó fenni í sporin hún lifir áfram
Um eilífð og aldir alda.