Úlfur Úlfur - Úrið mitt er stopp lyrics

Published

0 240 0

Úlfur Úlfur - Úrið mitt er stopp lyrics

(Verse 1: Arnar Freyr) Senn mun lengsti vetur í mínu mannaminni líða undir endalok Þá get ég dregið gardínurnar frá og loftað um rotið kot Og hætt að tæma tóma vasa mína fyrir skammtímabros Bros, bros, bros Ég hef heyrt að hrafninn syngi dægurlög sín fegur en nokkur fugl Og ég hef heyrt þótt að daginn lengi þá sé líf okkar stutt Að lokum heyrði ég að það sem fellur leitar að lokum upp Upp, upp, upp Von er á grænna grasi – von er á grænna grasi þeim megin sem ég bý Ég sperri þumalinn við gullinn veg og beini' honum heim til mín Ét eigið hold og í blóð morgunmat – mitt brauð og mitt eigið vín Mattar perlur og villisvín, það sem að skerpir mína sýn- Ist máninn ætla' að tjalda öllu til á heiðskýrum himni' í nótt Þá vex mér feldurinn, um skóginn á fjórum loppum læðist hljótt Ég bera tennurnar og naga af mér þrönga ól í nætursól Sól, sól, sól (Verse 2: Helgi Sæmundur) Það er svo einfalt að einfalda raunveruleikann Fljóta yfir ljóta fólkið, skjótast milli heimshorna Ég syndi yfir fjögur höf, baksund svo ég sjái Stjörnurnar segja mér til vegar, þangað sem ég þrái Hljóti ég vota gröf og aldrei næstu strönd ég sjái Reyndi ég þó að sleppa við hlekkina sem að ég setti sjálfur á mig Og það er meira virði en flest svo það fær ekkert á mig Lærði að elska daginn þegar ég og nóttin urðum náin Tíminn, mik** eða lítill Úrið mitt er stopp en það er tvisvar rétt yfir sólarhringinn Leyfðu mér að taka annan dans yfir taktana sem að hann spilar Á heimsendi þá vil ég segjast hafa lifað Dögunum með dögun fækkar samkvæmt sögum Satt eða logið er ég alltof freðinn til að skilja það Leyfðu mér að taka annan dans yfir taktana því ég vil halda í það Að deyja, vitandi að ég hafi lifað