Úlfur Úlfur - Svörtu augun þín lyrics

Published

0 227 0

Úlfur Úlfur - Svörtu augun þín lyrics

(Verse 1: Helgi Sæmundur) Í tímaglasinu Þú drukknar í sandinum Því að glerið gefur engan grið Það er ekkert hérna til að styðja við Rífum niður myndirnar, lífið þitt er hillingar Sandurinn hann er svo fínn Og elskan mín þú ert svo fín Manstu hvernig við dönsuðum Undir fullu tungli og stjörnunum Ég var þinn hvíti riddari Þar sem að þú skalfst og svitnaðir Rífum niður myndirnar Lífið þitt er hillingar Sandurinn hann er svo fínn Og elskan mín þú ert svo hvít (Chorus) En ég sé ekkert (ekkert) Ekkert nema svörtu (svörtu) Svörtu augun þín (Verse 2: Arnar Freyr) Í skugga sólarinnar Hold fölnar og rósir visna Varir þorna því vatnið er salt Faðma þig að mér því vatnið er kalt Hvíli beinin inn í þér Kyssi brjóstin og rifin tel Einskins virði er tilvist þín En elska mín þú ert svo fín Sefur þú? dregur þú andan enn? Eða hefur þú lokið verkinu Fortíðin gleymd og brennd Er við slökkvum á seinasta kertinu Hvíli beinin inn í þér Kyssi brjóstin og rifin tel Einskins virði er tilvist þín En elska mín þú ert svo hvít (Chorus) (Bridge: Arnar Freyr) Þú ert mögur og fögur Þú ert föl og þitt höfuð fullt af kolsvörtum sögum Ég við hliðina á þér í dögun Og ég fer ekki fet er þú hverfur í jörðu Því heimurinn er ekki staður fyrir þig Ég kyssi þig og kveð þig svo þú þurfir ekki að finna til Þú ert úr póstulíni vinan, sandurinn hann hylur þig Og friðurinn fer yfir þig og ég (Chorus)