Úlfur Úlfur - Barn lyrics

Published

0 225 0

Úlfur Úlfur - Barn lyrics

[Verse 1: Arnar] Ég er barn á öxlum barns í síðum frakka Genatískur milli upp við vegg í solid fjarka Góður í að ríða, góður í að rappa ég get ekki hætt á meðan Helgi gerir takta ég geng á ísinn pýrður eins og síberíutígur Síamstvíburi síðan um 99 ósofinn og þvalur Hálfur drýsill hálfur maður Annar dagur annar slagur Alltaf svangur eða graður Tilbið hamborgara og hold Allt sem að verður að mold Sit við ouija borð á smá trúnói við norn Muthaf**as dissa en b**h, finnið eitthvað nýtt upp ég hataði mig löngu áður en að það fór í tísku úlfurinn er ekki gimmick Heldur beast í alvörunni Ef það snýst ekki um buisness eða glimmer Skaltu ekki tala við mig þetta er heimabrugg, mánaskin sem rífur í Sjúgð'á mér snípinn tík Keep it real ofan í hyldýpi Kíki á kíkí í bikiní ringlaður í leit að blíðu Old school eins og húsmæður á spítti og valíum Strákar verða að mönnum og stelpur verða að mömmum og ég er enn að naga bein og halda þessu sönnu [Chorus: Helgi] Þeir eru ríkir sem standa á sínu Leikurinn launar í pappírum og blíðu Vinnan rífur í sig holdið en money er money Og ég á nóg af því sem ég þarf fyrir sjálfan mig homie [Verse 2: Arnar] ég er barn á öxlum barns á öxlum barns á öxlum barns Og enginn frakki er fær um að hylja mitt eðli Kem að landi á elegant fleka og flagga seðli Fínt að vera til í Reykjavík í góðu veðri En þegar sólin sest eiga geðlyfin alltaf vel við Lægðin er í loftinu Hvirfilbylur, þrumuský Fætur upp á borðinu Sver að ég fann upp á því Jarðvistin kerti sem að ég brenni í báða enda Kenndi mamma þín þér ekki að það er ljótt að benda? HA? Lenti á botninum en það fór aðeins of vel um mig þar Reis upp á mánudegi þegar líkið mitt fór að lykta í átján grýlna jakka Kom, sá og kýldi alla kalda Tíminn er dýnamít og ég tými ekki að líta til baka Ef ég fengi að slípa minn líkama á nýtt myndi ég fá mér píku Ef ég fengi tíkalla þegar að tík kallar væri ég ríkur í skugga sólarinnar tjilla á meðan myrkrið brennur Djöfull ertu nettur Eða hitt þó heldur [Chorus: Helgi] Þeir eru ríkir sem standa á sínu Leikurinn launar í pappírum og blíðu Vinnan rífur í sig holdið en money er money Og ég á nóg af því sem ég þarf fyrir sjálfan mig homie