Sigur Ros - Lækurinn lyrics

Published

0 282 0

Sigur Ros - Lækurinn lyrics

Ég er að horfa hugfanginn í hlýjum sumarblænum yfir litla lækinn minn, sem líður fram hjá bænum. Ó, hve marga æskustund áður hér ég dvaldi, saklaust barn með létta lund, og leggina mína taldi. Bæ ég lítinn byggði þar og blómum utan skreytti. Yfir tún og engjarnar oft ég læknum veitti. Nú er ekkert eins og fyr; á öllu sé ég muninn: löngu týndir leggirnir og litli bærinn hruninn. Æska hverfur. Yndi dvín. Allt er líkt og draumur. Áfram líður æfin mín eins og lækjarstraumur. Meðan æðum yljar blóð og andinn má sig hræra, skal ég syngja lítil ljóð læknum silfurtæra. Þegar eg er uppgefinn og eytt hef kröftum mínum, langar mig í síðsta sinn að sofna á bökkum þínum.