Sálin Hans Jóns Míns - Öskrið lyrics

Published

0 276 0

Sálin Hans Jóns Míns - Öskrið lyrics

Eldingar þjóta um himinhvolfið. Þrumurnar dynja í eyrum mér og regnið lemur —regnið lemur andlitið. Brostinn streng finn ég í hjarta mínu. Örvænting hleðst upp í huga mér, ég gæti hlaupið —gæti hlaupið í burt frá þér. Ég öskra á nóttina, ég öskra á þögnina, ég öskra á allt það illa sem er til. Vonleysi í gegnum tímann hefur þjakað mig og kaldur sársaukinn sem dregur úr mér —dregur úr mér allan mátt. Minningar, í gegnum hugann fljúga ósigrar ævina endalaust, ég verð að berjast —verð að berjast þér við hlið. Eld og ís finn ég í æðum renna. Samviskan bergmálar fjöllum í -já nú skal sverfa, nú skal sverfa grimmt til stáls.