Prins Polo - París Norðursins lyrics

Published

0 164 0

Prins Polo - París Norðursins lyrics

Fögur fyrirheit á blússandi siglingu á ullarnærfötum í grenjandi rigningu stími heim í heiðardalinn góður strákur og vel upp alinn. Mikið verður gott að knúsa kerlu Erlu, Erlu, Erlu, Erlu góðu Erlu sem giftist mér því ég kunni að skaffa sjómaður og sonur hans Haffa. Hlakka svo til að hitta börnin Maríu Hænu, Hafþór og Örninn vinna upp tíma, klippa smá og líma í eltingaleik fram að háttatíma. Hafið – Ég þekki ekki annað Afi – var harðmenni annálað Mamma – sultuslök nunna Systir mín – Gunna þunna Brósi – var örugglega vangefinn Frændi – rændi mig æskunni En þegar heim er komið bíður mín flaskan og á tröppunum stendur ferðataskan Erla góða, fór með vini á hestbak síðsti túr hann keyrði um þverbak. En þegar botni er náð er bara að standa upp aftur þetta veit hver heilvita raftur batnandi mönnum er best að lifa hinir geta bara étið hundaskít og slefað. Hafið – Ég þekki ekki annað Afi – var harðmenni annálað Mamma – sultuslök nunna Systir mín – Gunna þunna Brósi – var örugglega vangefinn Frændi – rændi mig æskunni