Muted - Gyðjur lyrics

Published

0 108 0

Muted - Gyðjur lyrics

[Viðlag / Hylling] Ég beini geislaspili sólar inn í sumargræna laut Safna saman blágresi og flétta höfuðskraut Tylli því á höfuð allra kvenna hér á landi Ég hylli ykkur gyðjur með þessu blómabandi Ég tek endurspeglun tunglsins upp úr tjörninni og smíða Silfurbláa eðalsteina slípaða og fríða Þeir gefa frá sér orkubylgjur ástríkar og þykkar Ég geri úr þeim hálsmen til að sveipa' um hálsa ykkar [Vers 1: Ari Ma] Í fyrstu trúarbrögðunum bjó gyðja yfir mættinum Til að blása lífi' í lífverur með andardrættinum Og stjórna takti himinsins úr hjartanu með slættinum Og konan hún var dýrkuð og tilbeðin af mönnunum Frjósami líkaminn hennar var sönnun um Að hún væri holdgervingur móður jarðar Innyfli hennar frjósamir garðar Sem veittu öllum næringu og gáfu af sér líf Móðurorkan ástríka hin máttugasta hlíf Konurnar í ættbálknum sátu þétt í hring Með börnin inní miðjunni og héldu lítið þing Þær töluðu um plöntur er þær kveiktu upp í bálinu Þróandi nákvæmni í tungumálinu Til að greina á milli ákveðinna laufa Að týna réttu plönturnar var upp á líf og dauða [Viðlag / Hylling] Ég beini geislaspili sólar inn í sumargræna laut Safna saman blágresi og flétta höfuðskraut Tylli því á höfuð allra kvenna hér á landi Ég hylli ykkur gyðjur með þessu blómabandi Ég tek endurspeglun tunglsins upp úr tjörninni og smíða Silfurbláa eðalsteina slípaða og fríða Þeir gefa frá sér orkubylgjur ástríkar og þykkar Ég geri úr þeim hálsmen til að sveipa' um hálsa ykkar [Vers 2: Ari Ma] Í tvö hundruð þúsund ár dýrkuðum við gyðjuna Nú dýrkar feðraveldið, vörur og verksmiðjuna Peninga, vélarnar og þunga-iðjuna Fyrir þrú til fjögur þúsund árum Var jörðin skreytt með sárum Menn fóru að grafa upp járnið úr jörðinni Magnaðist græðgin í karlmanna hjörðinni Vopnin urðu öflug og stríð var háð í gróða En morð er morð og til að hafa samviskuna góða Og til að geta haldið áfram að vera berjandi í hrönnum Var stríðsguðinn skapaður af herjandi mönnum Sem öðluðust nú kraft til að eyða öllu lífi Og græða fullt af peningum með endalausu stríði þeir misstu alla virðingu fyrir eigin konum Gerðu þær að eignum og slökktu á þeirra vonum Og elítan sem byggðist upp úr stríðunum fékk vinnumenn og þræla Sem sinntu öllum verkunum og elítan fékk tíma tíma til að pæla Lögfræðingar, dómarar, listamenn, og prestar Hermenn og læknar og já þeim fannst best að Útiloka konurnar frá því að taka þátt í þessu “Haltu þig í húsinu og hafðu hljótt í messu!” Á öllum sviðum samfélags Þeir settu niður reglur til að halda vel í valdið En nú á næstu árum þá losnar loksins haldið Já þá losnar loksins haldið Já nú á næstum árum þá losnar loksins haldið Já þá losnar loksins haldið [Viðlag / Hylling] Ég beini geislaspili sólar inn í sumargræna laut Safna saman blágresi og flétta höfuðskraut Tylli því á höfuð allra kvenna hér á landi ég hylli ykkur gyðjur með þessu blómabandi Ég tek endurspeglun tunglsins upp úr tjörninni og smíða Silfurbláa eðalsteina slípaða og fríða Þeir gefa frá sér orkubylgjur ástríkar og þykkar Ég geri úr þeim hálsmen til að sveipa' um hálsa ykkar