Muted - Glansandi í frumunum lyrics

Published

0 161 0

Muted - Glansandi í frumunum lyrics

[Vers 1: Ari Ma] Glansandi í frumunum Ég ansa bara guðunum Sem dansa um í funanum Ég stansa' í hellismunanum Með suðinu í flugunum Og tuðinu í huganum Innsæinu treystandi Skynsemina beislandi Vinsamlega geislandi Mér finnst það frekar freistandi Að hrökkva' úr tíma og kála' honum Slökkva'á tungumálunum Sem stökkva út úr brjáluðum Er rökkvar yfir bálunum Og klökknar yfir sálunum Vökumanna þrengingar Rök og málalengingar Stöku orðasprengingar Tökum þessar tengingar Tyllum þeim á grindina Fyllum upp í myndina Ég neita' að trúa' á syndina Þreyti ég nú þindina Og breyti mér í lindina Helli ég úr brunninum Sem vellur út úr munninum Og baða þig í laugunum Sem glaðar slaka' á taugunum Með hraða eyða baugunum Og laða þig að augunum Sem stara á þig elskandi Þig varanlega frelsandi Úr ímynduðum hugarheim Skrípaleik sem dugar þeim Sem sætta sig við fáfræði Hættum þessu brjálæði! Gættu þess að fá næði Til að hlusta' á þögnina Skilja agnar ögnina Sem inn í þér er glitrandi Finndu hjartað titrandi Með viljanum óstöðvandi Að þylja þetta' er örvandi Stundin hún er líðandi Fundin er hún hrífandi Lundin mín er klífandi Háu sælu tindana Spái ég í vindana Óðu ljóðin blásandi Góðu hljóðin másandi Fróðleikurinn fóðrar mig Ljóðhátturinn tjóðrar mig Lífið vil ég ríma um Dýfa mér úr tímanum Með tungumála mættinum Og þunga hjart-slættinum