Svört nótt Næðir kalt um hljóðan reit. Áfram, Enginn rétta stefnu veit. Kalt blæs, Blóðið storknar, máttur dvín. Snjórinn Breiðir út sitt brúðarlín. Dögun. Allt er horfið, engin slóð. Auðnin Þylur eyrum þagnarljóð. Felur För hins horfna fönnin gljúp. Gægist Sólin skær úr skýjahjúp.