Kef LAVÍK - Síðan vélin fór af stað lyrics

Published

0 183 0

Kef LAVÍK - Síðan vélin fór af stað lyrics

Sérðu ekki að ég er að tala í símann? Haltu áfram að Reykja allar sígaretturnar Haltu áfram að Láta eins og ég þurfi ekki að Borga það Gef þér salat, súpu, smjör og brauðsneiðar Gefðu mér þá smá tíma til að tala í símann - Haltu áfram að Reykja allar sígaretturnar Stundum vona ég Að þær drepi þig Sem fyrst Sem fyrst þú ert stundum eins og pínulítið barn Stundum er ég sko hársbreidd frá að Hringja og segja - Hæ þú ert fullkomnari en hún ég er búinn að vilja hringja Alveg síðan þú fórst út Sárin líta verr út en þau gerðu það blæðir meira úr ég veit Að ég hugsa bara um mig En þú veist það getur enginn verið Alveg fullkominn Alltaf þegar ég er inn í henni Hugsa ég um þig - Ef ég bara hefði getu í að taka upp símann ég held áfram að Reykja allar sígaretturnar þú ert alltaf að öskra á mig, kallandi mig Hræsnara Og ég skil það svo sem mjög vel Eða smá Stundum vil ég samt frið til þess að reykja Og hugsa - ég held áfram að reykja allar sígaretturnar Stundum vona ég Að þær drepi mig Sem fyrst Sem fyrst ég er haldinn kvíða eins og lítið barn Stundum heyri ég símann hringja Og vona að heyra - „hæ Viltu fyrirgefa allt ég er búin að vilja hringja Síðan vélin fór af stað ég ætla að koma aftur Eftir jólin Viltu vera þar? ég veit Að ég sagði ýmislegt En þú veist það alveg sjálfur Að mjög margt af því var rétt ég mun koma aftur Eftir jólin Og aldrei fara neitt“