IntroBeatz - Sannleikurinn Sagður lyrics

Published

0 185 0

IntroBeatz - Sannleikurinn Sagður lyrics

Þetta feita rímnaflæði nærð'aldrei að stoppa MC Diddi Felix verður aldrei uppiskroppa Hvort sem er á ástkæra ylhýra eða ensku Takmarkið er að lækna þessa Hip Hop flensu (Diddi Felix) Ég hef fylgst með hip hoppi í svona sirka 7 ár þegar ég skrifa texta veit ég alveg upp á hár Hvað ég er að gera, þessvegna mun ég alltaf uppskera Betur en eiginlega allir rapparar á klakanum kalda Á disknum var ein íslensk ríma en ég hafði hana falda Með hvíta flæða kröftugt minnir helst á Súðavík og þegar ég stíg á stokkinn míkrafóninn ávallt gríp Með þéttingsföstu gripi, les uppúr handriti Mikla visku jákvæðni og kannski smá húmor Með mikla reynslu minni helst á gamlan trúbador því að hip hop á Íslandi er tiltölulega ungt, það þykir þungt Að flæða rapp á Íslensku og láta það sounda mjög vel Uppalinn árbæingur, fyrsta gig var Ársel ég man í gamla daga þegar ég og Teddi rokkuðum Hip hop djömm, hér og þar á sviði skoppuðum, og létum crowdið skoppa líka Það var ansi öflug týpa senan var í hámarki Og Íslenskt hip hop var að fæðast þegar fyrsta hip hop platan kom þá hélt ég mundi ærast því að ég og Teddi vorum gestir í einu laginu ég er stoltur af því Að vera enn í sama f*ginu og ég mun þar alltaf vera Svo sterkur textalega að þú heldur ég borði stera ég get ekkert að því gert þó sumir MC'ar reyni að stíla mig Ég hef verið hér svo lengi að foreldrar þínir voru að fíla mig En það er líka útaf því, ég bý til alvöru tónlist ég loopa ekki big og öskra aldrei í míkrafóninn Þetta feita rímnaflæði nærð'aldrei að stoppa MC Cla** B verður aldrei uppiskroppa Hip Hop er ekki dautt bara afþví að það fór úr tísku Færum ykkur feitann skít og munum aldrei sýna nísku (Cla** B) Yo ég hef svo djúsí rímur það má setja í safapressu Ég er alltaf hress og ferskur eins og prestur fyrir messu Það er sama hvar og hvenær rokka hljóðnemann í klessu Þetta er ekta hip hop því að ég er ekki að þessu Til að geta vaðið um í seðlum eða píum Hardcore eins og skylmingaþræll í Colloseum En í staðinn fyrir sverð hef ég þennan míkrafón MC Cla** B ég kem með þennan eðaltón Enginn meðaljón þegar um rapp er að ræða Byrjendur og spyrjendur þá alla ég mun fræða Sökkera ég mun ræða Læt sem vind um meiru næða þegar fávitar vilja tala skít yfir stólum brýt Held mínu striki því ég nýt virðingar Með rímur ósnertanlegar eins og rafmagnsgirðingar Held ég toppsætinu verð alltaf númer 1 Punktur og basta ég reyki rappara eins og rasta Með eina feita rokka eina heita engin streita þegar tími kemur til að bregða á leik ég busta ekkert fake ekkert fals Var einu sinni í crewi sem hét Multifunctionals Við rokkuðum öll hip hop djömmin Og gáfum skít í þá sem þóttust representa slömmin En hinir þrír hættu að funkera Svo ég fór bara solo, með magic mér við hlið Við erum ferskir eins og piparmintu Polo, iðnaðarjöfur í rímuframleiðslu mér er skítsama um greiðslu Gemmér bara feitann takt og hljóðnema með leiðslu ég mun slá á létta strengi eins og engill með hörpu Ef ég tæki af mér gleraugun minnti ég á moldvörpu Staur fokkin blindur og alltaf neðanjarðar Breytir engu hver þú ert við munum alltaf rokka harðar Með þessu litla kvæði flowgát ég ætla að opna Bobbi er með munnræpu og ætlar aldrei að stoppa Feitt flow feitar rímur munum aldrei stansa takk Markið er að fækka fávitum í þessum bransa (Bobbi Vandræðagemsi) Ég er fölur eins og gras á veturna en rétt eins og snjóflóð þegar ég flæði öllu umturna Síðan þegar höfuðið hefur verið í bleyti Sjóðheitum rímum út úr munninum ég þeyti Flestir sem eru að hlusta vita ekki hver ég er Hver er þessi illi textasmiður sem er mættur hér Bobbi er nafnið Betri en flestir aðrir það sér hver sem er Eða að öllu heldur heyrir Tek mér góðan tíma þegar ég ríma Eins og gamalmenni sem keyrir þú í rímnaflæði er eins og ég í eðlisfræði Glatað bæði týnt og tapað Er svo með tilkynningu hér sem ég votta... Verður borin fram en ég þarf að gera svolítið fyrst það þarf að endurskilgreina rapp því nú er illt í efni ég ætla að læra lögfræði og svo í rétti ég stefni þeir sem fyrir öðrum skemma Hugsa sjálfsagt er eitthvað sem þeir ekki nenna þeir eru alltof margir sem bara bíta og stela Bakvið lélega takta og falskt viðhorf þeir sem kvela Allt sem þeir segja í sínum lögum er hrein lygi En ættu að eyða orku á einhvern á svo lágu stigi þetta verður málefni sem veldur vangaveltum þessvegna þessum textum yfir þennan taktu skelltu (skelltu skelltu)