IntroBeatz - Ofmat lyrics

Published

0 184 0

IntroBeatz - Ofmat lyrics

[Verse 1: Heimir Rappari] Kvöldið byrjar hægt þó Uppi á sviði fljótt, yo Bomba í mig einum, tveim og reima á mig rappskó Gríp í mic og flow-a með En ekki til að co-a með Rappa um það sem lífið er Með myndir til að sýna þér Hoppa upp á sviði, reyni að fá þig til að dansa með Má ég heyra hóóó eins og lífið sé að byrja hér Showið klárast sveittur en samt nettur Gott að þiggja high fives, bjór og sígarettur Tapaði af tímanum í góðum gír með Hlynsanum Hörkugame í miðbænum og Heimir borgar barþjónum Díjeinn með gott fíl En nóttin er ekki mitt real Mig vantar munch og leigubíl [Verse 2: Hlynur] Glerbrotunum sópað saman undan mínum lakkskóm Ljósin eru kveikt en sit sem fastast upp á barstól Bjórinn búinn úr glasinu það er löngu búið að loka Svo ég laumast út að aftan Verður með smá bjór í poka Klukkan orðin hellingur en laugavegur iðar Leiðindi og barsmíðar ég stilli fljótt til friðar Finn síðan föngulegan hóp til að fljóta með Heimahús og meira booze Og ég er búinn að bjóða mér [Hook: Heimir & Hlynur] Mér finnst þetta dálítið gott ég held ég ætti að fara að drullast (Klukkan mín er ekkert ef þú ert í kapphlaupi við tímann) Og öllum fer að ljúka nú er tíminn til að hvílast (Tíminn hann er núna og þú getur sofið síðar) Það eina sem er eftir er að kveikja í þessum kofa (Það er eftirpartý og þig langar til að koma) En bærinn hann er búinn og mig langar bara að sofa (Djamm er fokking snilld og skynsemi er ofmat) [Verse 3: Heimir Rappari] Yo, ég beilaði á Hlyn því að pabbi þarf að fara heim Vakna í fyrramálið, skutla fjögra ára í krakkageim Samt til í að stake a claim á alla MC-a Íslenskt hip hop væri tómlegra án Heimis rappara Kallaðu mig Clyde því ég glæda eins og Drexler Yfir beat með mic eins og Diddi fel, nice-er Á réttum stað með míkrófón upp á stól Þetta er crowd control, hendin upp Manute Bol [Verse 4: Hlynur] Horfi á hús sem ég þekki ekki, sit úti í garði í plaststól Með síðustu rettuna í grútskítugum lakkskóm Tæpar týpur og ókunnug andlit Kranavatn í vodka, það var bara ekkert bland til Laumast mína leið ég er ekki í góðu standi ég ströggla við hvert skref, það er hjálp í handabandi Löngu komið fyrramál ég er fölur eins og næpa Hún skoðar hvítann vegg minn og ég skoða hennar tribal [Hook] [Verse 5: Heimir Rappari] Ok, ég skal taka einn bjór enn Áður en ég beila, men Áður en það reddast far Svo er ég bara horfinn ma'r Afmæli á morgun, bro Hjá stelpunni, þú manst það, yo Klukkan fimm, þú manst það vinur Og svaraðu í símann, Hlynur [Verse 6: Hlynur] Ranka við mér sick seint Timburmenn og eftirsjá Ekki aftur eftirpartý Gáfaður eftir á Næst skal ég hegða mér Bro, ég skal lofa En sætar stelpur tæla mig Og skynsemi er ofmat [Pre hook] Sætar stelpur tæla mig og skynsemi er ofmat sh**, stundum bara ræð ég ekki við mig sko Hef enga stjórn á þessu, bro [Hook]