Sex augu, tólf stjörnur, með himinþokur milli fingra sér. Sveipaður myrkri og harmi, drukknandi augu synda yfir það sem fyrir ber. Leifar fjarlægra drauma finnast undir isilögðum sjáöldrum, berjast þær sýnir um að komast upp a yfirborðið. Vaki þú hyldýpi óskylt takmörkunum holdsins, Leyf okkur að hvÃla à faðmi þinum. Að þekkja ásjónu vÃtislogana, allar þessar óteljandi tennur. ÞÃnar sálhreinsandi hvÃtu klær, klórandi, fálmandi. Eftir hlutdeild à tilveru utan lÃkama. Sú óendandi þjáning, hve við þráum að þekkja form hennar, að samtvinnast greipum logans. YfirstÃga eðju holdsins, að svÃfa. Fuðra upp. Enda. EilÃft lÃf, bjögun hins illlýsanlega sjálfs, orðin eru bitur lofsöngur, og munnur okkar fullur af glerbrotum. án andgiftar, gleyptar hafa verið ófáar tennurnar. Ódauðleg prÃsund umlykjandi, aðgangur að djúpunum; hylling. Vonarglætan kæfð. Brenni þeir útlimir ófærir um að slá frá sér. Rotni það hold af beinum sem getur ei brunnið. Megi þessir tónar sveipa af hulunni, þetta verk hreinsa burt sköpunarverkið. Megi uppljómum tendrast à hugum allra. Megi allt sem er, vera ei meir. Hent inn à óseðjandi hreinsunareldinn, ráðgáturnar leystar og dauðinn eina frelsunarorðið. Frelsuð frá tilveru. Andinn dreginn á brott. Við sjáum pyttinn. Ginnungargap ofar öllum skilningarvitum, lÃkama kaffærða à óyfirstÃganlegum refsingum. Endi allra ferðalaga. Við heyrum sársaukaópin. Þær fjarlægu raddir sem klifra upp hallarsalina. Við lifum à draumaheim, sársaukinn vekur ei. Fingur titra, augun grÃpa à tómt. Litir renna saman à eitt, móðan smýgur sér à öll vit. Við erum bundinn à dróma, klædd sólinni. Himneskum eldi. Engin leið út.