Svavar Knútur - Spor lyrics

Published

0 357 0

Svavar Knútur - Spor lyrics

Langt liggur slóð þín, dóttir mín góð, um fjöll og um dali, fjarlægt land. Þar sem ég áður reikaði þjáður, leitandi skjóls um eyðisand, reikaði einn um eyðisand. Liggi þín leið um lágský á heiðum, þokuna glæðir mánans skin. Spor mín í sandi, sífelldur vandi. Láttu þau hverfa í hyldýpin, hverfa í kolmyrk hugdjúpin. Finn þína eigin slóð. Fegurri verður leiðin þín. Far þína eigin slóð. Fetaðu ekki í förin mín. Forðastu, dóttir, fótspor mín. Stundum ekkert sést, hvorki fjöll né firðir, þá auðnin er alger, allt er týnt. Ekki glata voninni, barnið mitt. Höfuðið berðu hátt og þá sérðu allt sem var hulið þinni sýn. Þá sérhver hríð mun reynast þér blíð og áður en varir sólin skín. Senn mun hún verma sporin þín.