Þegar ég horfi á þig mér finnst ég vera til Allt verður auðvelt, allt verður einfalt Getur verið að samanlagðar sálir geti einhverju breytt? Þegar ég horfi á þig lifna dauðir hlutir við Steinarnir ilma, gráta og hlægja Getur verið að samanlagðar sálir geti einhverju breytt Að allt verði yfirstigið, hvert náttúrunnar lögmál Og við svífum um loftið tvær ástfangnar flugvélar Yfir úthafinu ég elska þig það sér okkur enginn þar Og við svífum um loftið tvær ástfangnar flugvélar í fimm þúsund fetum ég kyssi þig og býst svo til lendingar Þegar ég horfi á þig er veröldin svo smá í faðmlagi okkar - jörðin og sólin Getur verið að samanlagðar sálir geti einhverju breytt Að allt verði yfirstigið, hvert náttúrunnar lögmál Og við svífum um loftið tvær ástfangnar flugvélar Yfir úthafinu ég elska þig það sér okkur enginn þar Og við svífum um loftið tvær ástfangnar flugvélar í fimm þúsund fetum ég kyssi þig og býst svo til lendingar Og við svífum um loftið tvær ástfangnar flugvélar Yfir úthafinu ég elska þig það sér okkur enginn þar Og við svífum um loftið tvær ástfangnar flugvélar í fimm þúsund fetum ég kyssi þig og býst svo til lendingar Tvær ástfangnar flugvélar