Nýdönsk - Skjaldbakan lyrics

Published

0 364 0

Nýdönsk - Skjaldbakan lyrics

Af fúsum og frjálsum vilja ég fór í bæinn í strætóbíl. Ákveðinn var ég og sárt við sór að nú skildi fjárfest í fíl. Gallvaskur gekk ég inn í gæludýrabúð heyrði ég fuglana garga. Afgreiðslupían við borðið prúð pínlega þurfti að arga Viðlag: Skjaldbakan skríður af stað... Heyrðu hérna fröken Fix Hafið'i hundakökur Nei, en hérna herra Kix við höfum risaskjaldbökur. Í ríki dýranna ráfaði um uns búrlásinn rakst ég á barðist ég við að ná. Viðlag... Skjaldbakan skreiðist að dyrunum út. Færist hún fjær og fjær. Setur síðan á munn sinn stút. Og afgreiðslustúlkan er ær. Viðlag...