[Vers 1] Ég hringdi ekki í gærkvöldi né daginn á undan ... ég læt mér það nægja að mæn'upp og hugsa Um auðveldan dag sem var betri en nú Hópar tvístrast en sá eini sem stóð eftir varst þú Með nóg á minni könnu, yo ég bjalla í þig seinna Önnum kafinn, kemst ekki, alltaf er það eitthvað En gerist lífið betra en nákvæmlega þegar Við tökum gott tjill, það heyrast hlátrasköll á meðan .. en þau augnablik eru orðin alltof sjaldgæf Lím hélt okkur saman en hvenær var það fjarlægt? .. er það hluti af því að fullorðnast að sjá þig sjaldnar? .. Lífið þeytist hjá, ég hugsum hve stutt árin staldra Við... erum þó í blóma lífs En blómin þarf að vökva ótt og títt Það er það sama með vináttu, þarf ræktana eins og rós Dytta að og hreins'ana, fær'ana undir sól Standa upp og ger'eitthvað, skapa þessar minningar ... Líta til baka, hefja það allt til vegs og virðingar ... Ég veit ekki mikið en ég held samt að Ef það er þú og það er ég er ég á réttum stað [Chorus] Ég þarf vináttuvita, sem að miðar á þig Og eina styrka hönd því mín hristist öll til Ber er hver að baki, hefði ég vitað það fyrr Hefði vináttuvitinn bara miðað á þig [Vers 2] Þú ert vindur undir seglinu nú tekst ég á loft En heldur mér á jörðinni ef ég stefni á hvolf Ef þú siglir af stað yo þá stekk ég um borð Því að... trygglyndi, veist ég þekki það orð Fyrir þig tæki ég kúlu, og glóðurauga líka Því ekkert myndi svíða meir að bróður sinn að svíkja Sumir fljótir yrð' að flýja, Adidas En við stóðum allan tímann, bak í bak … Og þannig verður það um ókomna tíð Sitjandi á tröppunum í snjókomu og hríð Því ekkert breytir því, þó það gangi aðrir burt Þá ganga sannir vinir inn, og hjálpa manni upp En sumir sjá mann skína, vilja deyfa bjarmann Manneskjur sem vilja sjá mann eyðilagðan Ég meina þær sem gleðjast yfir þjáningu manns En ég get lofað þér að þær mun' aldrei fá sínu fram Því ég spyr mig er mér finnst ég vera visinn maður Og öfund fær að krauma fyrir luktum dyrum … Hvernig er hægt að vera misheppnaður... … Ef þú átt fullt af vinum? [Chorus] Ég þarf vináttuvita, sem að miðar á þig Og eina styrka hönd því mín hristist öll til Ber er hver að baki, hefði ég vitað það fyrr Hefði vináttuvitinn bara miðað á þig