[Vers 1] Sumar stundir eru sjúklega næs Við gerum hvað sem er til að útvega þær Þessi hér er ein af þeim, von' hún fjar´ekki út Ég svíf á bleiku skýi, það er andskoti mjúkt Eins og… ég hafi verið eis' eitthvað próf Og minn maður bíður eftir mér með streymandi bjór En það var útborgun í dag svo þessi umferð er á mér Þú mátt eiga þennan drykk ef þú hugsar um hann vel Ég er klæddur eins milljón kall í reiðufé Og mér líður eins og enginn fái leið á mér Á eigin heimili eins og hótelgestur Og ég smella eins og kótelettur Undir heiðum himni, en ég er meira virði Allar þessar gellur koma inn og reyna við mig Sé nágranna að grilla og rölti Nær og segi: „slædaðu á mig illuðu kjöti!“ Það er börger númer tvö, setti samt mikið á hann Krakkarnir í hverfinu í vatnsstríði áðan Ég er í fíling og ég þarf pínu í tána Svo er sólin komin upp áður en partýið klárast En veturinn var sick, ekkert djók hvað það var kalt Ég hélt að draslið á mér myndi frjósa saman fast En þegar sólskinið er bjart og minn hópur er til taks Held ég að ég sé til í bókstaflega allt [Chorus] Sumar stundir eru betri en aðrar Og vinur minn, þessi hér er ein af þeim Ekki neitt verður tekið til baka Því babygirl, strákurinn er kominn heim
[Vers 2] Sumar stundir eru verri en aðrar Prófljóta, depurð, ekkert er gaman Ég var stresshrúga inn um svellbunka En engar áhyggjur, ég er fresh núna Þetta líf er veisla, heyri hljóð bergmála Í hjarta bæjarins er Þór gegn KA Gerist það betra? Ég efast um það Það er einsog þessi andblær sé ferskari í dag Tók basket með fellum og ég brennd' ekki af skoti Partýskútan siglir og ég held henni á floti Ég rúlla niður götuna með ískaldan drykk Fæ mér pizzu og rauðvín.. ítalasjitt Og ég ligg-bara.. á nýslegnu grasi Blæs lofti út og sýg að mér tanið… Því hver vill vera fölur í framan? Á svona stundum bro, djöfull er gaman Fór í sund í dag, skoðaði gellurnar og synti Hitti eina sem að bauð mér allt það sem ég vildi Hún bað mig um að beila og detta í kúr Samþykkt, ef hún verður snögg að skella sér úr Því sumar stelpur eru betri en aðrar Ég elti bara þessa svo ég þekk' ekkert annað Hún réttir mér ís, ég mun taka við og njóta Og fleiri hlutir harðna en karamellusósan [Chorus] Sumar stundir eru betri en aðrar Og vinur minn, þessi hér er ein af þeim Ekki neitt verður tekið til baka Því baby girl, strákurinn er kominn heim