Svört nótt
Næðir kalt um hljóðan reit.
Áfram,
Enginn rétta stefnu veit.
Kalt blæs,
Blóðið storknar, máttur dvín.
Snjórinn
Breiðir út sitt brúðarlín.
Dögun.
Allt er horfið, engin slóð.
Auðnin
Þylur eyrum þagnarljóð.
Felur
För hins horfna fönnin gljúp.
Gægist
Sólin skær úr skýjahjúp.