Flýgur á mér heilinn/
(Verse 1):
Þú lokar augunum
í gegn um litlar glufur
Sleppir draugnum burt
Og sérð hann fljúga upp
ég held ég hræðist þig
Mun meira en ég sagði þér í símanum
Og eins og flugeldur
þá flýgur á mér heilinn
Gegn um himininn
Minnir á drauginn þinn
ég held ég finni til
Mun oftar en ég viðurkenndi
Fyrir þig, fyrir þig
Skálum fyrir öllu sem við gerðum
Horfum agndofa upp í loft
það fer eftir smá
Hélt þú gætir aldrei flogið ein
Eins og þeir
(Chorus)
Baby, þú ert
Himininn á gamlárskvöldi
á gamlárskvöldi
Skálum fyrir öllu sem við gerðum
Horfum agndofa upp í loft
það fer eftir smá
Hélt þú gætir aldrei flogið ein
Eins og þeir
Skálum fyrir öllu sem við gerðum
Horfum agndofa upp í loft
það fer eftir smá
Ef ég gæti bara flogið burt
Eins og þeir
/Af rauðum kjólum og kókaíni/
(Verse 2):
Hún er í rauðum kjól með hálfan lítra af bjór
Syngur mér lítil ljóð um stríð og úthellt blóð
Tekur mig hálstaki og segist elska mig
Og allan peninginn sem við búum til
Drukkin og ein, ísköld og reið
Við erum heimsk
Grafandi gull, lemstruð og full
Við erum rusl
Við reitum arfa upp og plöntum peningum
Við gefum af okkur með litlu hjörtunum
Við ræktum litla sál, uppskerum reiði og tár
Við erum lítil börn að leita að ást
Drukkin og ein, ísköld og reið
Við erum heimsk
Grafandi gull, lemstruð og full
Við erum rusl
Smástelpa í heimi sem að er ekki smár
Strákur sem kann hvorki að elska né slást
Og þú ert rokeldspýta
Og þú ert rokeldspýta
Svo ef að þú segir það núna að þú elskir mig...
þá sver ég það, baby, ég mun springa að innann
/Innsprening
Finndu brjóstið mitt