helgin kemur hægar en ég var að vona
ó ef tíminn liði hraðar
heilinn minn fer hundrað kílómetra á tímann
bara ef þú gætir galdrað
yrðum við þá ánægðir?
stundum stöndum við tveir út af fyrir okkur
ef þú gætir bara elskað
oftast bara tekur þú allt í burtu frá mér
ef þú gætir gert allt betra
yrðum við þá ánægðir?
þú veist við erum ónýtir
postulínsdraumurinn minn
ef við værum ekki vannærðir
værum við þá ánægðir?
stundum hugsa ég um allt sem að ég geri
bara ef ég væri spóla
ýtti ég á rewind til að breyta öllu
ef þú gætir bara farið
yrðum við þá ánægðir?
þegar ég er fullur, stjórnarðu mér alveg
eins og strengjabrúðu á sviði
ef ég væri fálki myndi ég sko fljúga
hefði löngu skilið við þig
yrðum við þá ánægðir?
þú veist við erum ónýtir
postulínsdraumurinn minn
ef við værum ekki vannærðir
værum við þá ánægðir?
öskrin þín þau nísta alveg inn að beini
bara ef þú gætir þagað
myndi ég þá frelsast?
gæti ég þá elskað?
eða væri ég það sama?
yrðum við þá ánægðir?
þegar ég er aleinn hugsa ég samt til þín
ó hvað ef þú kemur aftur
verð ég aftur þyrstur?
verð ég aftur kyrktur?
ef þú gætir bara farið
yrðum við þá ánægðir?
þú veist við erum ónýtir
postulínsdraumurinn minn
ef við værum ekki vannærðir
værum við þá...