Fuglinn minn úr fjarska ber Fögnuð vorsins handa mér. Yfir höfin ægi-breið Ævinlega - flýgur rétta leið. Tyllir sér á græna grein Gott að hvíla lúin bein Ómar söngur hjartahlýr Hlusta ég á - lífsins ævintýr. Fús ég þakka fuglinn minn Fyrir gleði-boðskapinn Þessa ljúfu tæru tóna - tóna Þegar haustar aftur að
Af einlægni ég bið um það Að mega syngja sönginn þinn Sumargestur - litli fuglinn minn. Fús ég þakka fuglinn minn Fyrir gleði-boðskapinn Þessa ljúfu tæru tóna - tóna Þú átt athvarf innst í sál Ó að ég kynni fuglamál Skyldi ég lag á lúftgítarinn prjóna.