Ma**ífur dofi Var löngu farinn langt áður en ég kom inn Hættur að reyna, reyna að feta ofan í sporin Búinn að finna sátt við sjálfan mig og allt sem ég þoldi En lífið er draumur og tíminn naumur Lifðu eftir draumnum og engu öðru En með stjörnur í augunum horfum til geims Reynum ávallt að flýja burt í annan heim Ég svíf um hverfið pírður á hvítum hesti Skín eins og gersemi þó það þýði samt ekkert Allir illa brenndir eftir allt sem að gerðist Dýrar skemmdir sem fíkniefnin skildu eftir En við höldum okkur uppi Já enginn getur sagt okkur neitt Reynslan dýrkeypt, en þetta er mín leið Þekkið ekki minn heim, nei það er ekkert frítt hér Kem mér í hættur, erfiðar nætur Festist í flækjum, tækifærum í glæpum Og ég stend varla í fætur, eltandi læður Skildar svo eftir sem einstæðar mæður En við lifum og lærum Syrgjum og hlægjum Vöknum svo næsta dag til að gera þetta allt aftur Já við lifum og lærum Rífumst og sættumst Vöknum svo næsta dag til að gera þetta allt aftur Ég snýst í hringi flýjandi kvíðann minn Svífandi í endalausri spilavídd Vímuefnavítahring X2 Já þetta er GP og rúllettan Lítur út eins og húsið vann Já þetta er GP og rúllettan Legg alltaf undir allt Í þessu lífi þurfum við stundum áhættur Bara til að sjá hvað gæti gerst Í þessu lífi gerist allt fyrir ástæðu Sama hversu ósanngjörn sú ástæða gæti verið En lífið er ósanngjarnt Og ekkert óspjallað Og enginn saklaus f** it, við erum öll ógeðsleg Og ég hef fengið nóg af öllu sh**ti í bili og ég bið ekki um meir En það er eitthvað sem að liggur svo djúpt undir að ég get ekki sagt nei Sjáðu, ég er svo f**in háður Þarf alltaf að vera undir einhverjum áhrifum Kalt í mínum æðum Útúrsveittar sængur Lyfjaka**inn tæmdur Klósett fullt af ælu Átti lærdómsfulla æsku Handjárn, kærur Inni í klefa læstur Rændur í skjóli nætur Held ekki reglu Kann engar reglur Slæmar venjur það eina sem við þekkjum Hafnað og hent út Með kæruleysi í hámarki Hvernig get ég elskað ef ég elska ekki sjálfan mig En reyni að halda mér á jörðinni Bara finn ekki öryggi nema að finna á mér örlítið En þetta eru örlögin Vildi að ég hefði töfrasprota til að losa mig úr köðlunum Hvað hef ég gert hér Þú þekkir mig ekki Sterkasta sverðið Er kennsla og þekking Fólk lýgur og svíkur Breytir svo sínu Vináttu lýkur, tíminn líður Og áfram við lifum Því fleirri hluti sem þú reynir að gera Því færri hlutum muntu ná að afreka En við gerum okkar besta Ekkert of persónulegt lífið er bara svona Þú munt aðeins sjá aðra Jafn skýrt og þú sérð sjálfan þig Svo sama í hvaða ástandi Vertu samkvæmur sjálfum þér Og ef ástandið er of mikið Þá tími til að ranka við Taka eitthvað á málunum Þetta snýst ekki um hver þú ert heldur það sem þú gerir Hvernig þú sinnir þínu og þínum á hverjum degi X2 Já þetta er GP og rúllettan Lítur út eins og húsið vann Já þetta er GP og rúllettan Legg alltaf undir allt X2