Gísli Pálmi - '95 lyrics

Published

0 135 0

Gísli Pálmi - '95 lyrics

(Verse 1: Gísli Pálmi) Ég ráfa um en finn engar áttir Þegar að spái hvaða hutir virkilega skipta máli Í mínu lífi hef ég gjörsamlega týnt mér Er ég á rangri braut í minni lífsleið fyrir lífstíð? Er ég að elta ranga hluti? Berja á rangar hurðir? Ekki að gera það sem Guð vill? Ekki að fylgja Biblíunni? Er ég góðmenni eða illur? Ljósið eða myrkur? Bara ófundinn eða týndur? Stend upp, hvert skipti sem ég fell af mínu Því engin heldur Gísla niðri, Gísli heldur þessu niður Er ekki að fylgjast með öðrum, Ég er fylgjandi draumnum Til skýja við stefnum, svo komdu (Chorus: Gísli Pálmi x2) Ef þú ert nógu ekta til að skilja mig Þá er það eina sem ég vil frá þér Ef þú ert að elta hinnsta viljan þinn Þá er það eina sem ég vil frá þér (Verse 2: Gísli Pálmi) Einn að gera mitt getur verið einmanna Horfi á aðra gera sitt en ég finn mig ekki þar En fullur af reynslu Sem þú getur kennt engum í neinu skólakerfi í heimnum Ég er menntaður maður og ég skal kenna þér staðreynd Að þú munt festast á bakvið ef að þú ert ekki all in Því strákar segast vera solid En snúa sér við og snúa upp á orðin Ég endurspegla því sem ég vil sýna Gætir aldrei séð í gegnum mig þó ég hefði eitthvað að fela En er semi venjulegur í raun og veru Reyna að hreyfa mig sem mest og borða holla matartegund En hún er mín þessi veröld Munurinn á mér og þér er ég lifi eftir þessu Ljónið er frjálst í sinum haga, enga aga þarf að hafa Gangvart öðrum sem um vafa Við erum öll heilög, og ekkert er æðra Og sama hvað hann segir þá ert þú eitthvað miklu stærra Stattu fast í þína hæla, gerðu þig ekki aðra Ekki festa of marga spotta, því böndin fara flækjast (Chorus: Gísli Pálmi x2) Ef þú ert nógu ekta til að skilja mig Þá er það eina sem ég vil frá þér Ef þú ert að elta hinnsta viljan þinn Þá er það eina sem ég vil frá þér Ég reyni að hlekkja það besta sem þetta líf hefur að gefa En horfa á aðra vera skemma allt á meðan Ég sé fegurðina hverfa Sakleysið er farið, þetta er gengið alltof langt Við þurfum áttir til að stefna, rætur til að leggja Raddir til að kenna læra halda í og vernda Vera meðvituð um allt sem er að gerast Eða tapa öllu fyrir fölskum brögðum En við gerum okkar besta Bara svo upptekin af okkar umhverfi Dýrir bílar, föt til sýna Myndavéla símar, sjónvarpið og auglýsingar Ýta okkur út í búð til að eiga líka Flestir að vinna fyrir aðra Í stað þess að vinna í sjálfum sér (Chorus: Gísli Pálmi x2) Ef þú ert nógu ekta til að skilja mig Þá er það eina sem ég vil frá þér Ef þú ert að elta hinnsta viljan þinn Þá er það eina sem ég vil frá þér