Cody - Tungumálarar lyrics

Published

0 99 0

Cody - Tungumálarar lyrics

(Hook) Átrúnaðargoðin alveg ótrúlega góðir ótrúlega stórir förum ótroðnar slóðir Gerum meira fyrir stemminguna en fótboltamóðir Meira fyrir menninguna en bókmenntasjóðir X2 (Verse 1) Allar stöðvarnar eru að spila okkur Spilaðir meira en spilastokkur Náttúrugersemar það, það ætti að friða okkur Eins og skotskífa það taka allir mið af okkur Eins og Hallgrímskirkja taka allir mynd af okkur Eins of afmælisterta vilja allir bita af okkur Og það virðast allir fara í köku þegar þeir hitta okkur Textarnir okkar hafa vakið grunsemdir Fólk trúir því varla að þeir séu frumsamdir Málum daginn rauðan, bærinn varð undrandi Erum tungumálarar og förum tvær umferðir Erum það sem gerir Reykjavík góða borg Hættum ekki að rappa því þá myndi ríkja þjóðarsorg Eiginhandaráritun frá Átrúnaðargoðunum Er eiginlega ávísun á áralanga þráhyggju En hafið engar áhyggjur við munum alltaf sjá um ykkur Munum alltaf þróa okkur þú munt aldrei fá nóg af okkur (Hook) X2 (Verse 2) Göldróttari en David Blaine Semjum betri ljóð heldur en Einar Ben Með hlutina á hreinu eins og Óli Stef Bökum betri kleinur en Jói Fel Átrúnaðargoðin eru aðal skúbbið Frami sem við byrjuðum að plana ungir Vissir ekki hvað þú varst að fara útí Átrúnaðargoðin ekki bara músík Og þegar þetta lag kom út urðuð þið leynilega spenntir En urðuð síðan alveg greinilega svekktir þegar þið sáuð að það reyndist vera rétt við Værum alveg óumdeilanlega bestir (Spoken) G: Jæja, nú nenni ég þessu ekki lengur MK: Finish him Ég hef séð mann reyna að sannreyna spámann Og hann reyna að afneita staðreyndum blákalt Lofum að varðveita sannleikann ávallt Og harðneita að hagnast á afleitum málstað Framreiða fallegan magnaðan skáldskap Framleiða arfleið sem varðveitist áfram MK: Wow Hook x1