Ii.i. Þögul för Vegurinn þakinn þyrnum Þrír varðmenn Blóðþyrstir, blindir Ii. Hljóður læðist hjá þagmælskan þrúgandi Gulls ígildi Iii. Skerandi ljós Blindar mig Læstar dyr Standa mér opnar Iv. Leiðin handan Liggur djúpt í frjálsu falli ég glatast V. Hugdjarft flón Sleppir hiklaust taki Ráfandi, villtur Að útgönguleið Vi. Vitund mín klofnar Dauðinn fölnar Sandur stundagla**ins Seitlar úr höfði mér Vii. Auga mitt sokkið Hálfur í þessum heimi Líflaus tóft fær séð Sem mönnum er hulið Viii. Aftaka dyggðar Réttlæti fullnægt Flugnasuð Vein manna Ix. Myrkur geislabaugur Krýnir höfuð mitt Augu þín tendruð Dómsdagsbálið X. Fjarri harmi ásýnd þín yljar mér Leggst upp að barmi Djúpt í faðmi þér Xi. Blóðug mein Af heljarskörum hylltur Ástríðukvein Trylltur Xii. Og ég herði að kverkum þér Koss okkar mettaður dreyra Og þú herðir að kverkum mér Hvíslar mér hröfnum í eyra — Xiii. Átthyrnda sól! Kallaðu nafn mitt! Morgunstjarnan hungrar Xiv. Níu dagar Og níu nætur Blóð kallar á blóð Xv. Gegn níu hlið hrjáður Hef ég gengið dyggur Sem völvuþráður í nálarauga liggur Xvi. Frá skuggaós Streymir allur minn styrkur Það skærasta ljós Skapar dýpsta myrkur