Carpe Noctem - Ars Moriendi lyrics

Published

0 83 0

Carpe Noctem - Ars Moriendi lyrics

Ii. i. Mara á brjósti mér Hlær Strýkur mér um Stjarfan vanga Ii. Svefndauður Andvaka Hvít gríma lögð á andlit mitt Iii. Svartur eldur Logar úr brjósti mér ég reyni að öskra En maran hlær Iv. kaldar hendur, kaldar klær Toga þig niður Drukknaðar sálir, örvona Toga dýpra og dýpra V. Jarðarfararmold Skríður um þig, skríður inn í þig Lifandi étur þig dauðan Iðandi ormar iðrast Vi. Þrútið hræ gall storknaðir vessar Blómstraðu Skinn og bein, skinn og vein Skorpnar varir berar tennur Vii. Sem ljár fellir korn Og naðra hleypir ham Rotnar af mér Aur jarðar Viii. Við beinaströnd Situr jötna far Ferjan dökka Bíður mín Ix. Ég slít úr höfði mér Ríf af himnum ofan Blóðugt fargjald Silfrað ennitungl X. Haturs fljót ólgandi stormur Nístandi öldurót það kallar, það hvíslar Xi. Dregur mig nær Dregur mig nær! Dregur mig... Xii. Óminnisvatn Hreinsar morkinn huga þyngsli mörunnar Af mér létt Xiii. Ég geng Um aldir alda Meðal hinna Gleymdu dauðu Xiv. Bein mín gulnuð ég hósta Ryki og mold ég dreg andann á ný Xv. Grafardróttinn! Ég ákalla þig! Xvi. Láttu mig lausan! Veittu mér dauðann! Xvii. Hún situr mig enn þung á brjósti Og hlær holum tóni Xviii. Ormétinn Maðkaþvagan titrar í takt Við hjartslátt minn Xix. Svartasta ljós! Xx. Stoðir hrynja Auðnin rís Endinum náð Xxi. Dauðrahersir Reisir mig við Yfir föla kúpu Dregur hann andlit mitt Xxii. Hvaða leið Sem við kjósum að feta Er einungis glötun Sem bíður við leiðarenda