Bróðir Svartúlfs - Rólan sveiflast enn lyrics

Published

0 143 0

Bróðir Svartúlfs - Rólan sveiflast enn lyrics

Óaðskiljanlegir Áður saman fléttur forsaga Prýdd löngum dögum Heimahögum Ævintýri dagleg En nú hver á sinni grein Hver með sinn djöful að draga Misgóðar sögur af hversdagsslögum hvíslaðar við varðeld Skegg óx og tímans tennur rifu í sig barnslegt hold Ryð afmyndaði paradís sem brotnaði niður og gull varð loks að mold Ég fékk mér glæný augu til að sjá gegnum hóla og hæðir En tapaði nærsýninni fyrir vikið Og greini því heild en enga þræði Og riddarasveitin hún hætti störfum Menn hurfu á brott hver á eftir öðrum Persónulegar styrjaldir hófust Þeir slógust en af þeim fór misjafn hróður Því er gangur sólarinnar snerist við Villtust sumir í leit sinni að eldivið Urðu úti Einir Týndir Enginn sýndi vott af söknuð Augun rauð og stúlkan farin burt Fæða í æð og búkur veslast upp Yfirgefinn leikvöllur Rólan sveiflast enn Tómar lúkur áður geymdu gull Sál í skyndi inn í víti flutt Yfirgefinn leikvöllur Rólan sveiflast enn Einn kom sá og sigraði það sem allir mennskir óttast Veitti oss innblástur sem að hefðu sjálfir lagt á flótta Annar gekk nakinn um miðjan vetur út og lagðist í skafl Sýndi að ískristalshjörtun má með vænum faðmi hlýja Sá þriðji hunsaði ábendingar þar til allir þögðu ráfar Um stefnulaust sem vofa íklæddur snjáðum lörfum Margur sat spakur heima við Grunlaus undir verndarvængjum Blindur á grimmdina sem að var stöðugt á ferð í bænum Mikið magn af vatni hefur nú runnið til sjávar Dropar hafa holað steina Vangasvipi málað Ör er munu áminna þig til komandi ára Ör er munu áminna þig til komandi ára Hittið mig í skóginum Við skulum byggja bál þar Himininn er strigi Ég með blóði mínu pára Sitjum hljóðir þar til hárið okkar fer að grána Sitjum hljóðir þar til hárið okkar fer að grána Mikið magn af vatni hefur nú runnið til sjávar Dropar hafa holað steina Vangasvipi málað Ör er munu áminna þig til komandi ára Ör er munu áminna þig til komandi ára Hittið mig í skóginum Við skulum byggja bál þar Himininn er strigi Ég með blóði mínu pára Sitjum hljóðir þar til hárið okkar fer að grána Sitjum hljóðir þar til hárið okkar fer að grána Augun rauð og stúlkan farin burt Fæða í æð og búkur veslast upp Yfirgefinn leikvöllur Rólan sveiflast enn Tómar lúkur áður geymdu gull Sál í skyndi inn í víti flutt Yfirgefinn leikvöllur Rólan sveiflast enn