Ari Ma - Friðarboði mannanna lyrics

Published

0 173 0

Ari Ma - Friðarboði mannanna lyrics

[Vers 1: Ari Ma] Ég anda inn í líkamann og skynja orkusviðið Beini mér í bringuna og opna hjartahliðið Orkubylgjur verða til og bylta sér í öldum Þær flæða inn í rýmið þitt með dularfullum göldrum Fylla þig af fiðringi og friða niður masið Ég breyti mér í lindarvatn og rétti öllum glasið Takturinn er tól til að týna sér í tíma Tungan mín er fól sem vill glíma við að ríma Hjartað mitt er sól sem vill skína og sýna Þeim sem vilja rýna inn í sína Meðvitund, hugarhnífinn brýna - einblína Á andardráttinn renna inn um nefið Loftið strýkur nösunum og endurtekur stefið Það festir mig í núinu að finna loftið flæða Flestir geta trúað því að hugurinn minn æða Eyðileggja þögnina því eitthvað vill hann ræða Með ímyndaðri framtíð vill hann okkur hræða En leyfðu því að gerast, taktu það í sátt Fylgstu núna með því hvað hann hefur hátt Hann talar út í eitt - um allt og ekki neitt Festu þig í nefinu þú getur þessu breytt Þú getur þessu breytt Þú getur þessu breytt [Viðlag] Einn með andardrættinum Og meðvitundarmættinum Algjörlega vakandi Útkoman er slakandi [Vers 2: Ari Ma] Augnablikið líður líkt og lækurinn í dalnum Framtíðin og þátíðin liggja nú í valnum Allt sem ég hef kennt mig við hverfur inn í tómið Stundum er ég rigningin, stundum er ég blómið Stundum er ég skógurinn, stundum er ég ljóðið Stundum er ég dauðaþögn, stundum er ég hljóðið En alltaf er ég vitnið að veruleikanum Hugmyndir á sveimi, ég sé þær reika um Ef ég bara reyni þær stefnu breyta um Ég sendi þær í hjartað - til að vega' og meta Því meðvitundin bjarta - vill í fótspor feta þeirra sem að kveiktu bál í hjartanu og elskuðu þeirra sem að fundu sig í sálinni og frelsuðust þeirra sem að kenndu mér að lifa hér á jörðinni þeirra sem að yfirstigu geðveikina' í hjörðinni þeirra sem að kenndu sig við stjörnuduft í geiminum þeirra sem að sameinuðust fullkomlega heiminum Að ganga inn í hugljómun er það sem mig dreymir um Vekja upp mitt æðsta afl sem sefur nú í steininum Ég vil verða hjartahreinn og róandi Egóinu lógandi Engri orku sóandi Sinna mínu hlutverki sem friðarboði mannanna Baráttan um lífið mitt, ástarorkan vann' hana Máttugasti krafturinn, horfðu á mig sanna' hana Sálin hún er dularfull, ég horfði inn og fann hana Meðvitundin magnast og ég held áfram að kanna' hana Tungan stígar dans og ég titra' á milli tannanna Röddin mín svo öflug að þeir munu reyna' að banna' hana [Viðlag] Einn með andardrættinum Og meðvitundarmættinum Algjörlega vakandi Útkoman er slakandi