Ari Ma - Andagift lyrics

Published

0 103 0

Ari Ma - Andagift lyrics

[Vers 1: Ari Ma] Hvað er það sem skiptir mestu máli í þessum heimi? Að dvelja' í augnablikinu í meðvitundar-streymi Að elska eigin líkama að elska eigin veru Að þakka fyrir gjafirnar sem að fyrir eru Að gera það sem hjartað segir sálinni að gera Að vera það sem þú vilt í raun og veru vera Að fara í ævintýri og týna sér á leiðinni Stara inn í stjörnurnar og finna sig á heiðinni Baða sig í vötnunum og labba um í skógunum Elska sólarljósið og syngja hátt með lóunum Rölta út í óbyggðir og hlægja dátt með tröllunum Hlusta vel á þögnina sem dvelur upp í fjöllunum Halda sig í auðmýktinni' og hrósa öllum hinum Heilsa upp á ókunnuga' og gera þá að vinum Draga andann djúpt inn í bringuna og magann Vinna vel í sjálfum sér, byggja upp sjálfs-agann Reyna að hætta að baktala líkt og eitruð naðra Hafa stjórn á tungunni og reyna' að gleðja aðra [Viðlag] Hvað er það sem skiptir mestu máli í þessum heimi? Að dvelja' í augnablikinu í meðvitundar-streymi Að elska eigin líkama að elska eigin veru Að þakka fyrir gjafirnar sem að fyrir eru Að gera það sem hjartað segir sálinni að gera Að vera það sem þú vilt í raun og veru vera [Vers 2: Ari Ma] Sannleikurinn einfaldur en afar flókin blekkingin Veruleikinn töfrasmíð segir hjarta-þekkingin Nú göngum við um jörðina í tvífætlinga formi Lifum við í miðjunni á breytinga-stormi Samfélagið matar okkur, selur okkur lygar Stjórnar okkar skipulagi, sálir okkar sligar: "Gerðu þetta, gerðu hitt, farðu í nám og taktu lán Gleymdu þínum draumum því listin hún er smán Framtíðin er mikilvæg og nútíðin er drasl Farðu að undirbúa þitt 50 ára basl Hugsaðu um krakkana sem þú munt færa í heiminn Það græðir enginn pengina á því að vera dreyminn Á ljóðum einum saman þú heldur engum söddum" Nei! nei! nei! nei! ég hlæ að þessum röddum Ég vil lifa lífinu líkt og halastjarna brennandi Fara í milljón ferðalög og gera eitthvað spennandi Læra hundrað tungumál og kynnast þúsund menningum Dýfa mér í bækurnar og synda um í kenningum Lifa beint frá hjartanu í frjálsum ástar dansi Skrifa til þín, alheimur, ástarljóð í transi Þú fyllir mig af friði, aldrei er ég stressaður Ég elska þig, ég þakka þér, mér finnst ég vera blessaður [Viðlag] Hvað er það sem skiptir mestu máli í þessum heimi? Að dvelja' í augnablikinu í meðvitundar-streymi Að elska eigin líkama að elska eigin veru Að þakka fyrir gjafirnar sem að fyrir eru Að gera það sem hjartað segir sálinni að gera Að vera það sem þú vilt í raun og veru vera