[Chorus] Ég steig mín fyrstu skref Með manneskju sem ég Fann reikandi um alein En dró allann mátt úr mér Eftir áralanga ferð Með svartan fána og sverð Ég steig mín fyrstu skref Við stígum okkar fyrstu skref Ég stíg mín fyrstu skref Á stéttina hjá þér Og tárin renna hljótt Draga allann mátt úr mér Eftir ævilanga ferð Gef þér koss á kinn og fer Ég stíg mín fyrstu skref Ég stíg mín fyrstu skref [Bridge] Og það er erfitt fyrir mig Að líta undan því sem komið hefur fyrir mig Sagan segir margt en segir aldrei alla söguna Bakvið tjöldin sé ég ekki þvöguna, böðulinn og snöruna Það er erfitt fyrir mig Að líta undan því sem komið hefur fyrir mig Sagan segir margt en segir aldrei alla söguna Bakvið tjöldin sé ég ekki þvöguna, böðulinn og snöruna [Verse: Úlfur Úlfur] Stopp, fokk, ég næ ekki andanum Ákalla guð og jesú krist en hvað í fjandanum Ég er á krossgötum með kross á bakinu og bilað úr Og þó að ég fari ekki fet, þá fjarar nærvera mín út Við erum ólík ég og þú, þú ert hvítt, ég er svart Þú býrð í kastala, ég bý í kjallara Við siglum í mótvind, hafið er djúpt og við ósynd Fokkit ég bakka ekki, þarf ekki akkeri, hræðist ekki sjóinn
Ég er úlfurinn Þú, mállausa brúðurin Klæði þig úr húðinni Hlið við hlið á brúninni Ég sver ég elska þig, bara aðeins minna en áður fyrr Ég get fundið logn í fárviðri en get ekki kortlagt sjálfan mig Ég á alla ævi okkar á ljósmynd Eilífðin er fræ í svörtu tómi Það skín engin birta af dauðu ljósi Þó að ég gefi þér milljón rauðar rósir Sólin kemur upp en ég horfi niður Færi yður gull, reykelsi og myrru Ég get ekki lengur gert neitt með vissu Þó að þú sért miðandi á mig byssu Ég er orðlaus en reyni, viltu fleygja í mig beini? Ég skal mála allann heiminn Ég skal tjá mig með reyki Ég mun dá þig í leyni Bölva á hverjum degi Ég er hreinskilinn en það hlustar alls enginn á þann sem þegir [Bridge] Og það er erfitt fyrir mig Að líta undan því sem komið hefur fyrir mig Sagan segir margt en segir aldrei alla söguna Bakvið tjöldin sé ég ekki þvöguna, böðulinn og snöruna Það er erfitt fyrir mig Að líta undan því sem komið hefur fyrir mig Sagan segir margt en segir aldrei alla söguna Bakvið tjöldin sé ég ekki þvöguna, böðulinn og snöruna