Svarthvítur í huga mér Altaf er vetur hér. Hvar eru litir norðursumars, Æskublóm sakleysis? Eru Draumar bernskunnar Nú uppi dagaðir? Já erfitt er að halda í Lífsins sumarnón. Formúlur ljóss ég rita Í blárri skímunni. Bakkus mér nú býður í
Skuggabræðra boð. Brestur í gömlum þökum. Heyrirðu stormsins nið? Hjartarætur fylltar kuli, Svo langt í vorboðann. Milli óttu og árs dagsmáls Sofa mannanna börn Og mávagarg bergmálar Yfir Reykjavíkurborg.