Slær á hafið himinblæ, hyllir undir dranga, geislum stafar sól á sæ, signir grund og tanga. Út með sænum einn jeg geng, að er hrannir falla, heyri' í blænum hörpustreng hafmeyjanna gjalla. Við þann óminn eyk jeg spor
út við svarta dranga; það eru hljómar þínir, vor, þeir til hjarta ganga! (Blessað vertu og velkomið, vorið yndisbjarta, þú, sem allt af fró og frið fyllir sjerhvert hjarta!)