Á veikri líftaug
Vonin mín hjarir.
Hún kemur aftur,
Áður en varir
Hún veit að engir
Bíða þess bætur,
Ef holklaki legst
Við hjartarætur.
Hún kemur, svo víki
Vetur og klaki,
Með vor og söng
Í vængjablaki.
Þar er hún komin,
Sem þráði ég og unni,
Með lítið, f*gurt
Laufblað í munni