ég er með rauðan punkt á höfðinu
ég keyri úr Keflavík
með bjórka**a og vélbyssu
fjóra bíla á bakinu
og hana í aftursætinu
ég heyri hávaðann í sprengjunum
jesús mér fylgi í friði
englar sitja í bílstólum
hún grætur hástöfum
en ég er bara að drekka bjur
við gufum bæði upp
eins og vatnsdropar
við erum alveg eins
rusl og gimsteinar
ég færi hendina yfir brjóstka**ann
hjartsláttur alveg eins og
risastórar sprengingar
við munum deyja í dag
en money lifir alltaf samt
hún hefur sama svip og vofurnar
sem fljúga innra með mér
tek tvö hits og keyri út af
ég sé allt þúsundfalt
en samt hvernig þeir nálgast hratt
við gufum bæði upp
eins og vatnsdropar
við erum alveg eins
rusl og gimsteinar
ég er með 100 k í töskunni
blóðþyrstu tígrisdýrin vakna
og hún grípur mig
tekur mig hálstaki
og stingur mig með glerbroti
þú lyktar alveg eins og jólatré
þú hefur sama svip og
ég þegar mér líður vel
stundum þá líður mér
mun verr þegar ég er með þér
við gufum bæði upp
eins og vatnsdropar
við erum alveg eins
rusl og gimsteinar
(rusl og gimsteinar, rusl og gimsteinar,rusl og gimsteinar...)