Ef að þig ber út af leið áttu við að staldra og þar magna mikinn seið mestan allra galdra halda skaltu í höndina heimsins ef þú getur vinda upp á villuna við það hafa betur Ef þinn harmur heftar þig heims í þungu basli þá er ráð að ræskja sig rifja út öllu drasli
bera út myrkrið börum í brosa svo við göllum reyna að gera gott úr því gefa hamingju öllum Ef að þig ber út af leið áttu við að staldra og þar magna mikinn seið mestan allra galdra halda skaltu í höndina heimsins ef þú getur vinda upp á villuna við það hafa betur