húsið er að gráta alveg eins og ég
það eru tár á rúðunni
sem leka svo niður veggina
gæsin flýgur á rúðunni
eða er hún að fljúga á auganu á mér
ætli húsið geti látið sig dreyma
ætli það fái martraðir
hárið á mér er ljóst
þakið á húsinu grænt
ég íslendingur
það grænlendingur
mér finnst rigningin góð
la-la-la-la-la, o-ó
mér finnst rigningin góð
la-la-la-la-la, o-ó
einu sinni fórum við í bað og ferðuðumst til balí
við heyrðum í gæsunum og regninu
það var í öðru húsi
það var í öðru húsi
það var í öðru húsi
það á að flytja húsið í vor
þér finnst rigningin góð
la-la-la-la-la o-ó
mér finnst rigningin góð
la-la-la-la-la o-ó..