Veröldin er varasöm
víða leynist brotalöm
það getur vargur reynt vinur í raun
meðan vinirnir níða og svíkja á laun
sætan ávöxt syndin ber
sem þeir bera að vörum þér
allt þar til tjöld taka að falla
og tímans lög dæma alla
heyrist hverjum bjallan glymur
heyrið hverjum bjallan glymur
þarna hljómar hún
já þarna ómar hún
hún segir ding ding ding,
dong dong dong
sumir hata verði þeim af því
þeim er hjartað og sálin þung sem blý
en elska þá sem illur sá
og sjá það líður hjá
hræddir men og hræsnarar
hrærast jafnan allsstaðar
en auðnist þér að aftra þeim
heyja von um betri heim