Þitt hús er bjart sem helgidómur. Þitt hús er dýrðlegt sem kóngsins slot. Þú átt á banka þitt kaup og krónur. Þú kemst víst tæplega í matarþrot. Og sælt er að lifa við gull og gengi. Þín gæfa er mikil svo björt og hlý. Þú hvorki sorgir né þrautir þekkir. Og þjónar drottni með kurt og pí. En milli þilja í þínu húsi er þrotlaust unnið hvern dag og nótt. Með hvössum tönnum, er nagað, nagað
og nagað mest þegar allt er hljótt. Þitt hús er voldugt og viðir sterkir og veggir traustir með saum og hnoð. En hva**ar tennur sem naga og naga þær naga í gegn hverja máttarstoð. Og bráðum tapast þitt gull og gengi og gæfan hverfur svo björt og hlý. Þér finnst hann sár slíkur sleggjudómur en slotið hrynur með kurt og pí.