Ég vil fá mér kærustu sem allra, allra fyrst En ekki verður gott að finna hana. Því hún skal hafa kinnar eins og hrútaber á kvist Og hvarmaljósin björt sem demantana. Hún skal vera fallegust af öllum innanlands Og iðin við að spinna og léttan stíga dans Og hún skal kunna að haga sér hið besta. Þær eru flestar góðar meðan unnustinn er nær En oss þær eru vissar til að blekkja En ég vil fá mér eina þá sem ei við öðrum hlær, Sem elskar mig og bara mig vill þekkja.
Og hún skal líka finna bestu hugarró hjá mér Ef húsi mínu færir hún iðni og dyggð með sér Og stóra, fulla kistu bestu klæða. Og ef ég svo í eina næ rétt alveg sem ég vil Þá óðara til brullups skal ég feta Og sveitafólk mitt veislu fær sem vantar ekkert til En vín og hrokafylli sína éta. Og þar skal vera dans og drykkja daga þrjá í röð, Hin dýra ást oss gjörir í hjörtunum svo glöð En til þess verður ofurlitlu að eyða.