Þú sem átt engan að, Ekki öruggan stað Eða sæng til að hlýja þér í. Þú sem misst hefur allt Út í náttmyrkrið kalt, Ertu borinn og vistaður því. Ef þú átt engan aur Ert þú örlítill maur Luktum augum vors yfirvalds í. Því að svefndrukkin þjóð f*gnar sjálfstæði, óð Og allt siðferði brátt fyrir bí.
Þetta myrkranna afl Mannar hættulegt tafl Og þá mennirnir falla eins og strá. Þar sem allt snýst um að Setja tölur á blað Og þá sitja menn fúlgunum á. Af því sem þú hefur Er það sem þú gefur Nákvæmlega það sem þú munt fá. Engin spurning um trú, Þetta er lögmál og þú Getur alls ekki komist því hjá.