Út við sjónarrönd leynist gullin strönd
og þar kýs ég oft að dvelja.
Þar er kyrrð og ró út við lygnan sjó
og þar á ég lítinn kofa.
Sumardægrin löng ég hlýði á f*gran söng
sem þar berst mér oft til eyrna.
Allir una við hreina loftslagið
engin þörf á því að menga.
Fólk hér kann sér hóf, ekkert græðgikóf
hér er kappnóg fyrir alla
Ef þú sérð inná við, inná annað svið
munt þú heyra sönginn f*gra.
Nú er lag, nú er lag
Kveikjum nýja elda kveikjum þá í dag