Regnið það fellur,
í jörðina skellur.
Rennur í eitt.
Rennur í eitt.
Náttdöggin glitrar á blómunum,
himnarnir breiða úr sér á túnunum.
Eldarnir brenna í hjörtunum,
mennirnir vakna af svefninum.
Skýjaborg myndast á himnunum,
dropafjöld fellur úr skýjunum,
lækirnir renna af fjöllunum,
droparnir týnast í fjöldanum.
Því vil ég vera eins og vatnið.