Einn ég reika um aftanbil
ákaft á mig leita
hugsanir sem heyra til
hærri tíðni sveita.
Í fjarska fjöllin himinhá
f*gran dalinn prýða.
Læt ég tímann líða hjá
lengi mun ég bíða
Hér er gott að gista í nótt,
göngustaf minn hvíla.
Þar sem ríkir húmið hljótt
ég hlusta á vindinn ýla.
Tíðkast græðgi gífurleg,
gengið allt úr skorðum.
Ég vil ganga annan veg
er völva kvað um forðum.
Halda vil ég heim á leið,
hugleiða á tindi.
Afl það hrindir allri neyð
eykur vorsins yndi.